Shades of Style

GJAFALEIKUR: essie fall 2014



Ég lofaði ykkur ansi spennandi gjafaleik um daginn og ég var sko alls ekki að ljúga! Eins og ég hef svo oft talað um þá gjörsamlega elska ég Essie naglalökkin. Þau eru að mínu mati langbest og svo eru til svo fallegir og margir litir að velja úr. Þau eru ekki fáanleg á landinu nema í Fríhöfninni en ég vona að við fáum þau bráðlega! Ég pantaði mér nokkur af eBay eins og ég geri vanalega (mæli með búð sem heitir enchantedbeautyspot) og fékk mini glös af haustlínunni með. Í pakkanum voru þessir fjórir litir; Dressed to Kilt, Style Cartel, Take It Outside og Partner in Crime.
Ég get ekki ákveðið hvaða litur mér finnst fallegastur en ég var að setja á mig litinn lengst til vinstri sem heitir Partner in Crime og hann kemur mjög vel út. Gæti ímyndað mér að setja svo matt yfirlakk yfir - það er örugglega mjög flott!
Mig langaði að gleðja einn lesanda bloggsins og þess vegna ætla ég að gefa einum lesanda þessa liti hér fyrir ofan úr haustlínunni frá Essie. Til að taka þátt þarft þú að fylgja þessum leiðbeiningum og ekki gleyma að skilja eftir comment, annars get ég ekki haft samband við þig ef þú vinnur. Gangi ykkur vel og takk fyrir að lesa

a Rafflecopter giveaway


  • Love
  • Save
    1 love
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...