Shades of Style

HOME: unicorn poster



Ég gjörsamlega elska hvað það er að bætast í flóruna af vefverslunum hérlendis en vefverslunin Minimal Decor opnaði fyrir nokkrum vikum. Þar er að finna mjög margar fallegar vörur fyrir heimilið, þar á meðal þessar gullfallegu myndir eftir Guðnýju Hrönn sem kallast Unicorn. Það eru fjórar myndir í Unicorn línunni og eru þær eftirprent af vatnslitamyndum eftir hana. Mér finnst vatnslitamyndir svo ótrúlega fallegar svo ég valdi mér mynd nr. 4 og fær hún að standa á kommóðunni inn í svefnherbergi þar til ég finn ramma utan um hana og finn stað handa henni frammi í stofu. Ég er allavegana ekki eina rauðhærða á heimilinu eftir að þessi varð mín x
Guðný Hrefna, eigandi Minimal Decor, verður svo með jólamarkað um helgina á KEX ásamt fleiri vefverslunum svo ekki missa af því! Er ekki fullkomið að njóta helgarinnar að skoða fallegar vörur og finna jólagjafir - ég vildi óska þess að ég gæti einmitt gert það en helgin mín fer í lærdóm, það eru bara tvö próf eftir og jólafrí eftir 5 daga!
// There are so many new Icelandic online stores opening up which is amazing! I got this pretty watercolour print the other day from a new online store, Minimal Decor. I am so happy with the print, I just have to find a frame for it and hang it up in the living room. Now I am not the only redhead at home x


Varan sem ég fjallaði um í þessari færslu fékk ég sem gjöf. Skoðanir sem koma fram í færslunni eru mínar eigin.
  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...