Svana

INNLIT HJÁ RAKEL HLÍN EIGANDA SNÚRAN.IS

Eins og þið hafið flest tekið eftir þá hefur úrval íslenskra vefverslanna hreinlega blómstrað á undanförnum mánuðum, -ein af mínum uppáhalds er Snúran.is sem hefur vakið athygli fyrir gott úrval af ódýrum en fallegum vörum til að skreyta heimilið. Rakel Hlín Bergsdóttir er eigandi vefverslunarinnar Snúran.is, hún býr ásamt eiginmanni sínum Þóri Júlíussyni og fjórum börnum þeirra í Kópavogi þar sem þau hafa komið sér vel fyrir.

Við hjá NUDE Magazine kíktum í heimsókn til Rakelar í síðasta tölublaði sem hægt er að skoða nánar hér.

Ég elska þessa stofu og hefði gjarnan viljað ræna þessu fallega listaverki eftir heimsóknina, en það er eftir Nynne Rosenvinge sem Snúran selur einmitt plaköt eftir. Þetta tónar allt svo fullkomlega saman, listaverkið, sófinn, teppið og svo er ljósið auðvitað punkturinn yfir i-ið.

Fallegt ekki satt:)

Mæli með að kíkja á viðtalið sem finna má hér.

  • Love
  • Save
    1 love
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...