Svana

HAUSTHYGGE

Það er sko ekkert grín hvað ég er búin að vera myndarleg hér heima fyrir síðustu nokkra daga, þeir sem búa með mér (hóst…Andrés) spyr reglulega hvort ég hafi fengið högg á höfuðið svo ólík mér hef ég verið. Ég get nefnilega verið algjör draslari en núna er sko breyting á. Ég er í þessu að vinna í myndavegg fyrir ofan sófann, ég var ekki nógu sátt með stóru Scintilla myndina þar, einnig er ég smátt og smátt að reyna að gera smá kósý fyrir haustið og hvíldi bleika t.d. Hay púðann minn og fékk mér þessa fallegu gæru á sófann.

Ef að þið mynduð sjá sófann þá gætuð þið séð að hann er smátt og smátt byrjaður að afmyndast öðrum megin eftir að ég er búin að sitja þar eins og sófakartafla síðustu 6 vikur.

Þetta er ekki það eina sem ég er búin að vera að bralla hér heima…ég hélt ég myndi slá í gegn þegar ég tók mig til og minnkaði bleika litinn sem var búinn að koma sér fyrir í öllum rýmum og á öllum hillum og veggjum, en neinei þá fannst sumum orðið heldur kuldalegt í staðinn, ég ætla að sýna ykkur fleiri myndir á morgun!

Vonandi var helgin ykkar góð:)

x svana

  • Love
  • Save
    1 love
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...