Svana

LITUR ÁRSINS 2015

Alþjóðlega litakerfið Pantone hefur tilkynnt lit ársins 2015 og er það Marsala 18-1438 eða öðru nafni rauðvínsbrúnn. Fjölmörg fyrirtæki fara eftir slíkum litaspádómum og eru mörg hver þegar farin að leggja línurnar að vörum í Marsala litatónum, snyrtivörumerkið Sephora gaf einmitt út tilkynningu að þeir muni gefa út innan skamms snyrtivörulínu innblásna af litnum, og munum við svo sannarlega sjá meira af þessum lit á komandi ári.

Mér finnst liturinn vera fallegur, elegant og hlýlegur. Hann er sérstaklega flottur þegar kemur að snyrtivörum og fatnaði en ég er ennþá að melta hann fyrir heimilið, mögulega of þungur fyrir minn smekk. Ég sé þó fyrir mér fallega púða, teppi og glervörur sem kæmi vel út.

Í tilkynningu Pantone segir: “Sensual and bold, delicious Marsala is a daringly inviting tone that nurtures; exuding confidence and stability while feeding the body, mind and soul. Much like the fortified wine that gives Marsala its name, this robust shade incorporates the warmth and richness of a tastefully fulfilling meal, while its grounding red-brown roots point to a sophisticated, natural earthiness.”

Liturinn nærir s.s. líkama, huga og sál í stuttu máli.

Hvað finnst ykkur um þetta val?

  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...