Svana

JÓLAGJÖF SVART Á HVÍTU HLÝTUR…

Hún er svo sannarlega lukkunnar pamfíll hún Anna Kristín Óskarsdóttir sem ég dró út rétt í þessu sem vinningshafa gjafaleiksins. Hlýtur hún því samtals 100.000 kr. gjafabréf í flottustu netverslunum landsins.

Verslanirnar sem um ræðir eru:

EPAL , ESJA DEKOR , HJARN, HRÍM, I AM HAPPY, MINIMAL DEKOR,

MJÓLKURBÚIÐ, PETIT, REYKJAVÍK BUTIK, SNÚRAN.

Ég vona svo sannarlega að gjafabréfið komi sér afskaplega vel fyrir hana Önnu Kristínu, ég hefði viljað geta glatt enn fleiri en þátttakan fór fram úr mínum björtustu vonum með um 3.000 þátttakendum.

Kæra Anna Kristín, sendu mér endilega póst á [email protected]

Ég þakka kærlega fyrir allar athugasemdirnar sem bárust og býð í leiðinni nýja lesendur velkomna og vonandi endurtökum við svona leik aftur seinna. Án ykkar væri þessa bloggsíða ekki neitt neitt:)

Með bestu kveðju, Svana

  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...