Í leit minni að himneskum og hollum grænmetisborgara rakst ég meðal annars á þessa girnilegu Thai sætkartöfluborgara með hnetusmjörsósu á blogginu hennar Oh she glows. Þar sem ég elska allt tælenskt, sætar kartöflur eru í miklu uppáhaldi hjá mér og hnetusmjör er að mínu mati út úr þessum heimi gott, þá var ég nokkuð viss um að þessi gæti ekki klikkað. Sem hann svo gerði heldur ekki og reyndar fór hann svo langt fram úr væntingum að hann hefur verið gerður oft síðan og ég ætla að leyfa mér að vera stórorð gefa honum nafnið “Heimsins besti grænmetisborgari”.
Það má alveg sleppa brauði í þessari uppskrift án þess að það komi að sök og t.d. nota sætar kartöflur í staðinn, en mér þykir gott að hafa brauð neðst. Fyrir ykkur sem getið ekki kóríander þá má taka það alveg út eða nota steinselju í staðinn. Það er kannski smá dúllerí að útbúa þá, en vel þess virði enda dásamlega bragðgóðir og stútfullir af góðri næringu.
Heimsins besti grænmetisborgari
1 stór sæt kartafla, afhýdd
25 g ferskt kóríander, smátt saxað (má sleppa eða nota t.d. steinselju)
15 g fersk basil, smátt söxuð
3 hvítlauksrif
2 tsk engifer, rifið fínt
70 g salthnetur, smátt saxaðar (má nota kasjúhnetur)
70 g haframjöl
1 dós (425g) soðnar kjúklingabaunir, án vökva
2 msk hörfræmjöl (t.d. NOW ground flax seed) 3 msk vatn, blandað saman í skál (má nota 1 egg í staðinn)
½ msk sesamolía, t.d. frá Blue dragon
1 msk soyasósa
1 tsk safi úr ferskri límónu
1 tsk kóríanderkrydd
1 tsk sjávarsalt
pipar
Hnetusmjörsósa
1 hvítlauksrif
6 msk mjúkt hnetusmjör
2,5 msk safi úr ferskri límónu
2 msk sóasósa
1-2 msk vatn (eða jafnvel meira eftir þörfum svo hún sé ekki of þykk)
1 tsk engiferkrydd
1/8 tsk chayenne pipar