Á sunnudagskvöldið hjólaði ég eins og leið lá til góðvinkonu með létta flösku í farteskinu.Ég ákvað að taka ekki myndir á leiðinni því að ég var svo agalega upptekin að því að njóta og upplifa umhver...
Labbitúr í sveitinni.
Ég er að vinna upp liðna tíð.Hér höfum við til dæmis páskasumarbústað með tilheyrandi hefðum.
Á Kaffismiðjunni í mars.Kanilskonsa með miklu smjeri, osti og sultu og fyrirmyndar kaffi með.Þar er líka í boði að naglalakka sig ef viljinn er fyrir hendi.
Sá fullt og skoðaði á laugardegi í apríl.Stutt síðan en samt ekki.
Það er eiginlega skylda að koma við á útskriftasýningu Listaháskólans á hverju vori.
Á labbi út um allt sá ég allskonar merkilegt.
Opið hús hjá drengnum sem er í þann mund að ljúka leikskólagöngu sinni.Í boxunum mátti finna ýmsar gagnlegar upplýsingar. Hann elskar t.d. pabba sinn af því að hann leyfir honum að prófa símann sinn ...
Panna II þar sem mest er best og annað er pest.Sorrí með blússandi lúðann en það er eiginlega svoleiðis*
Æddi yfir Brooklyn brúna á harðaspani til þess að komast á hádegisverðardeit á rómuðum pítsustað. Lallaði svo í rólegheitum tilbaka.
Ein besta flugferð lífs míns.Las alla leiðina á milli þess sem ég fékk mér kelló drykk í kaffið sem var merkt mér sjálfri, líka mikið vatn og djús.Mætti miklum skilningi sætisfélaga minna þegar ég kl...
Á leið til New York í apríl og ég fékk gluggasætið.
Ef einhver hress myndi vera svo væn(n) að búa til föt í þessum stíl þá væri ég til í að kaupa alla línuna.
Ég spreyjaði ramma í október og hengdi þá upp á vegg í febrúar.Slaka.
Það voru samt alveg búningar á Öskudaginn þó að þeir hafi ekki verið gerðir á æðislega rómantískan máta í næturgistingu.Ég þurfti að gefa upp drauminn minn um að sauma ET búning að þessu sinni en Ind...
Heimabakaðar pizzur og forskot á bolludaginn á laugardegi fyrir nokkru.Grímur segir rjómi (sjomm) í tíma og ótíma.
Það sem átti að verða metnaðarfull "Öskudagsbúningaundirbúnin gsnæturgisting" snerist upp í fáránlega mikið drasl heima hjá mér og efni út um allt, engir öskudagsbúningar og borðað af pappadis...
Gamla Lundby dúkkuhúsið mitt hefur gengið í endurnýjun lífdaga.Ég notaði það mest sem þrautabraut fyrir hvítu tilraunamýsnar mínar sem slitu gólfefninu og fjölguðu sér á ljóshraða.Nú er það íverustað...
Krakkarnir redda sér mestmegnis sjálf á morgnanna...um helgar.Fá sér að borða, búa til fleti og skemmta litla bróður sínum.Já og sumir dunda sér við að hefta nýjan kjól á dúkkuna sína.Heftarinn var f...
Góður matur og enn betri félagsskapur á fyrsta laugardegi febrúarmánaðar...ég er alveg hætt að grenja.Það er ekki eins og ég borði með fætinum.
Febrúar!Þessar myndir voru teknar í janúar þegar ég húkti við gluggann og fylgdist með allskonar tegundum af veðri, aðallega snjó og komst ekki út og reyndi að hressa mig við með því að borða allskon...
Eins og það er nú gaman að fara í dýragarð og skoða íbúa hans þá er líka eitthvað sorglegt við það.Að dýrin hafi verið fönguð og sett í búr okkur til skemmtunar. Þessir apar búa í Barcelona og ég gat...
Ár drekans er runnið upp og mér finnst tilvalið að fagna því.Á laugardaginn klæddu krakkarnir sig upp í kúng fú búninga eftir eigin höfði án þess að vita hvað það var viðeigandi.
Það var kvöld eitt, einhvern tímann fyrir jól að ég tók með mér ískaldan bjór út í skúr og málaði pastellitaða trjágrein.Þegar ég var á leiðinni inn aftur fann ég lokkandi kökuilm í loftinu og óskaði...
Laugardagskvöld í vönduðum félagsskap fyrir ekki svo löngu.
Áður en krakkarnir náðu að skreyta allar piparkökurnar í húsinu, nappaði ég nokkrum til eigin nota og hengdi þær allsberar út í glugga í forstofunni.Þær hanga þar enn og seríurnar líka...kannski bara...
Smá brot úr deginum...ökklabrot.Ég hef legið með fótinn ofan á stafla af púðum lungað úr deginum og æfi mig á hækjunum þess á milli.Gæti verið verra.
Næturgistingu á milli jóla og nýárs.Frænkur+frændi skáru úr og skreyttu piparkökur í margar klukkustundir samfleytt og gleymdu næstum að fara að sofa.
Tréð sem einu sinni var svo fjarska fínt er farið að minna óþægilega mikið á þurrskreytingu þessa dagana. Það ilmar samt vel og ég þrjóskast við að hafa jól í nokkra daga í viðbót.
You are no longer following . Undo?