Shades of Style

FAVORITE: daisy dream



Eitt það skemmtilegasta sem ég gerði í sumarvinnunni var að taka upp nýjar vörur! Ein vara sem ég beið spennt eftir var nýji ilmurinn frá Marc Jacobs - en hann ber nafnið Daisy Dream. Eins og nafnið gefur til kynna er hann líkastur draumi; en ilmurinn af honum er léttur, ferskur með smá hint af kókos sem minnir mig bara á sumarið. Þetta er hinn fullkomni dagsdaglegi ilmur þar sem hann er ekki of yfirþyrmandi og ég er búin að nota hann óspart síðan ég fékk hann í hendurnar.

Annað sem heillar mig svo við ilmvötn eru flöskurnar sjálfar, en þessi flaska er ein sú fallegasta sem ég veit um. Ég elska að geyma ilmvatnsflöskurnar mínar á kommóðunni minni þar sem það á ekki að geyma svona fallega hluti í kassa - hefur þú prófað Daisy Dream?

// I recently got the new fragrance from Marc Jacobs called Daisy Dream. It's the perfect everyday scent; so light and fresh with a hint of coconut which just reminds me of summer days. I also love the design of the bottle, so pretty! Have you guys tried this one yet? ♥


  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...