Svana

#TRENDNET & #EPALDESIGN

Eins og þið hafið eflaust tekið eftir þá umlykja fallegar hönnunarvörur Trendnet þessa dagana, og það er mér svo sannarlega að skapi:)

Við hjá Trendnet ætlum því í samstarfi við verslunina Epal að setja af stað Instagram leik þar sem að þátttakendur geta nælt sér í fallegan Hay Dot púða að eigin vali. Hay púðarnir hafa notið mikilla vinsælda undanfarið en það sem er svo skemmtilegt við þessa púða er hversu miklum karakter þeir búa yfir og setja þeir því skemmtilegan svip á sófann eða rýmið sem þeir eru í. Púðarnir koma í tveimur stærðum og mörgum litum og eru doppurnar mismunandi á litinn eftir því hvernig þú snýrð púðanum.

Þeir eru bæði flottir einir og sér eða ásamt fleiri púðum.

Hrikalega flottir púðar sem þú getur unnið á auðveldan hátt!

Það sem þú þarft að gera til að komast í pottinn er að merkja þitt Trendmóment #EPALDESIGN & #TRENDNET á Instagram.

Gaman væri að sjá flottar heimilishugmyndir, brot af heimilinu ykkar eða annað sem þið gætuð vakið athygli Epal með:)

Besta myndin vinnur!

Einnig hvet ég ykkur til að fylgjast með Epal á facebook & instagram, ásamt því að sjálfsögðu að fylgjast með Trendnet á facebook til að fá allar nýjustu fréttirnar.

Höfum gaman og tökum þátt!

-Svana

  • Love
  • Save
    2 loves
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...