Svana

INNLIT: FLOTTUR MYNDAVEGGUR

Myndaveggur, myndaveggur, myndaveggur…

Það er fátt sem lætur mig fá jafn mikinn hausverk og að hengja upp myndir á vegg! Ég á mjög erfitt með að hengja upp myndir heima vegna þess hversu erfitt mér finnst að taka ákvörðun hvar þær eigi að vera. Þessvegna fá myndirnar að liggja uppvið veggi á gólfinu í marga mánuði í senn… Planið er þó að koma heimilinu alveg í stand í sumar og því þarf ég að finna rétta staði fyrir myndirnar sem fyrst!

Héðan er hægt að fá hugmyndir af uppsetningu en þessi íbúð er með mjög flottan myndavegg,

Myndaveggir geta verið jafn ólíkir og þeir eru margir, ég er mjög hrifin af svona “random” uppröðun þar sem ólíkar myndir eða listaverk eru sett saman, hér að ofan hefur strútsfjöður og klukku einnig verið skellt upp á vegginn sem kemur mjög vel út og gerir hann örlítið meira spennandi.

Smart heimili:)

  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...