Svana

UNIKAT REYKJAVÍK

Ef að þið hafið ekki nú þegar kíkt við í nýju og flottu hönnunarverslunina Unikat þá er dagurinn í dag alveg tilvalinn til þess. Stelpurnar í Unikat ætla nefnilega að fagna myrkrinu og nýjum vörum í dag á milli kl. 5 og 7. Á boðstólnum verða ýmis girnileg tilboð, happdrættisbingó með frábærum vinningum og svo auðvitað fljótandi veigar.

Einnig langar mig að benda ykkur á að með því að líka við Unikat á facebook og deila einni mynd eigið þið möguleika á að vinna 10.000 kr. gjafabréf í versluninni sem verður dregið út seinna í dag, ef það er ekki tilvalið fyrir jólin þá veit ég ekki hvað:)

Mér finnst svo skemmtilegt að nokkrir af mínum uppáhaldshönnuðum eru núna samankomnir í einu og sömu búðina ásamt mjög flottum vefverslunum, en merkin sem standa á bakvið UniKat er Dýrindi, Mjólkurbúið, SONJA BENT, Hjarn, HringeftirHring, Postulína, Nína Hlöðversdóttir og Hlín Reykdal.

Verslunin er staðsett í hjarta borgarinnar við Frakkastíg og Laugaveg.

Ég mæli með heimsókn þangað í dag:)

  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...