Hönnunarmars hófst í epal í dag og þar sýndu hönnuðir nýja hluti og það var ótrúlega margir nýjir fallegir og sniðugir hlutir. Ég mun fjalla um þá sem mér fannst mest spennandi síðar. Á morgun mun ég svo eyða deginum í Hörpu á Design talks þar sem einvala lið alþjóðlegra hönnuða og arkitekta verða í sviðsljósinu. Ég er ótrúlega spennt fyrir deginum og reikna með að hann verði lærdómsríkur.
Það er alveg helling um að vera um helgina og er hönnunarmars ekki eingöngu fyrir hönnuði og annað fólk í þeim bransa. Ég ætla sjálf að reyna nýta helgina vel og kíkja á fullt af stöðum og sjá nýja hluti, með von um að þu gerir það líka. Hægt er að kynna sér dagskrána og alla viðburði HÉR!
-Sara Sjöfn