Svana

Í NÝJASTA GLAMOUR…

Þið eruð vonandi flest búin að sjá nýjasta eintakið af Glamour sem kom út á dögunum, ég er búin að lesa mitt blað í ræmur, en þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef gerst áskrifandi af nokkru tímariti, enda finnst mér það algjörlega frábært. Reyndar lét ég svo vinkonu mína fá það eintak því ég fékk aukablað sent í pósti í þakklæti fyrir að hafa skrifað efni í þetta blað. Aftarlega í blaðinu undir lífstílskaflanum má nefnilega finna eina blaðsíðu þar sem ég fer yfir nokkur falleg ljós, skartgripi heimilisins eins og ég kýs að kalla þau.

Ef þessi fíni frídagur er ekki fullkominn fyrir kaffihús og tímarit!

Ég mæli með þessu;)

x Svana

  • Love
  • Save
    Add a blog to Bloglovin’
    Enter the full blog address (e.g. https://www.fashionsquad.com)
    We're working on your request. This will take just a minute...